Fotbolti.net
12.07.26 - 23:37
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Brazell segir að hann hafi ekki haft nein samskipti við Dóra Árna

Auglýsing
Brazell segir að hann hafi ekki haft nein samskipti við Dóra Árna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Aldrei gott að tapa, mjög vonsvikinn en á sama tíma er ég vonsvikinn fyrir strákunum" sagði Chris Brazell, þjálfari Vals eftir 2-0 tap gegn FH á Kaplakrika.

Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Valur

„Ég veit að væntingarnar hjá klúbbnum er að vinna alla leiki. Ég held að þegar fólk myndi horfa á þennan leik fyrir leikinn að þetta myndi vera létt og að við myndum rúlla yfir þá."

„Tilfinningin mín er að mínir leikmenn settu allt í leikinn og reyndu sitt besta, spiluðu mjög vel og gáfu allt í þetta í seinni hálfleik. En þessar síðustu tuttugu mínútur, allir sem horfðu á þennan leik eru sammála því að eitt liðið tók yfir leikinn og við enduðum að tapa."

Chris Brazell gerði engar breytingar á sínu liði í dag.

„Engar afsakanir þarna. Þetta er ekkert á móti strákunum sem voru á bekknum, mér leið á þessum tímapunkti í leiknum að leikurinn þurfti smá stöðugleika. Allir þeir sem horfðu á leikinn myndu vera sammála því að við vorum sterkir fyrstu þrjátíu mínúturnar í seinni hálfleik og mér leið eins og það var ekki rétt að breyta því. Mér leið eins og við áttum ekki hentuga valkosti á bekknum til þess að sækja fram í leiknum eða taka leikmenn af vellinum. Við vorum með mikinn kraft í fremstu fjórum, þannig að ég vildi ekki taka þá út af. Aftur, engar kvartanir varðandi bekkinn."

Hefurðu átt í eitthverjum samskiptum við Dóra Árna?

„Nei, engin samskipti. Ég þekki Halldór, við erum nágrannar. Við tölum saman og ég hef óskað honum til hamingju. En ég er með fókusinn á að gera starfið sem ég var ráðinn til þess að gera."

„Það er ekki mitt starf að skipta mér af þessu, ég læt klúbbinn sjá um þetta. Þeir eru að byggja liðið á bak við tjöldin, minn fókus er á liðinu núna."

Hefur Dóri Árna ekki komið með sínar skoðanir hvernig liðið á að spila eða hver á að spila?

„Nei, ekki sem ég veit af. Ég segi það sama aftur, minn fókus er á liðinu núna. Ég tek ekki þátt í leikmannaskiptum."

Munt þú vera aðstoðarþjálfari Dóra Árna á næsta tímabili?

„Ég er ekki að hugsa út í það, það er ákvörðun sem klúbburinn mun taka og ég virði það."

„Ég var mjög virkur í þjálfarateyminu, ég hef verið mjög virkur í þjálfarateyminu fyrstu þrettán leikina og ég er mjög virkur í þjálfarateyminu núna. Hingað til hefur þetta ekki verið gott, ég læt klúbbinn taka þessar ákvarðanir."

Tryggvi Hrafn er á leiðinni til ÍA

„Auðvitað í lok tímabilsins, já."

„Ég veit að ég er með Tryggva til enda tímabils. Ég veit að hann mun gefa allt í þetta og í staðinn fær hann fullan stuðning frá mér."

Geturðu staðfest að Tryggvi fari í enda tímabils?

„Aftur, hann og klúbburinn munu ákveða það. Auðvitað eru margar vangaveltur um framtíð hans."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.