Hótað lífláti eftir að hann gaf ekki á Haaland

Alexander Sörloth.

Mynd: EPA

Alexander Sörloth.

Mynd: EPA
Unnusta norska sóknarmannsins Alexander Sörloth hefur stigið fram og greint frá því að parið hafi fengið líflátshótanir í gegnum samfélagsmiðla.
Reiðin beinist helst að atviki í tapleiknum gegn Englandi þar sem Sörloth og Erling Haaland voru tveir gegn einum varnarmanni en Sörloth kaus að reyna sjálfur skot í stað þess að senda á Haaland. Skot hans var varið en þarna var staðan 1-0 Noregi í vil.

„HM og fótboltinn færa mikla gleði en einnig mikið hatur. Ég vil ekki veita þessu athygli en eftir að hafa fengið svona skilaboð finnst mér ég þurfa að tjá mig," segir Lena Selnes, kærasta Sörloth.
Á Instagram birtir hún skjáskot af ljótum skilaboðum þar sem má meðal annars sjá fjölda einstaklinga hvetja hann til að taka eigið líf og aðrir sem segja þeim báðum að fremja sjálfsmorð.
Sörloth, sem spilar fyrir Atletico Madrid, fór í viðtal eftir 1-2 tapið gegn Englandi og tjáði sig um atvikið þar sem hann gaf ekki á Haaland.
„Ég tók snertingu og horfði upp, þá sá ég Stones komast fyrir mögulega sendingu. Ég tók þá aðra snertingu en hún var ekki góð. Ég vildi senda á Erling en sá ekki möguleikann og reyndi þá sjálfur," sagði Sörloth en atvikið má sjá hér:

This angle of Sørloth ignoring Haaland. The reaction from Haaland says it all man. He was frustrated and disappointed, just like the rest of us. pic.twitter.com/i1sf0SjAH7
— Geronimo Morgans (@GeronimoMorgans) July 12, 2026

Mynd: Instagram