Fotbolti.net
13.07.26 - 12:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lárus Orri: Væri náttúrulega mjög gott að fá hann í glugganum

Lárus Orri: Væri náttúrulega mjög gott að fá hann í glugganum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson verður leikmaður ÍA í síðasta lagi eftir tímabilið. Hann er búinn að skrifa undir samning sem tekur gildi eftir tímabilið.

Tryggvi er þangað til samningsbundinn Val og bar fyrirliðabandið gegn FH í gær.

En gæti hann farið í ÍA strax í glugganum?

Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra Sigurðsson í viðtali eftir svekkjandi tap gegn KA í gær.
Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA
TENGT EFNI

Tryggvi staðfestir að hann fari í ÍA

Lestu um leikinn: KA 3 - 2 ÍA
„Ég hef bara ekki hugmynd um það. Ég er með nóg af vandamálum til að hugsa um án þess að fara skipta mér að því, þú verður að tala við Ingimar (framkvæmdastjóra) um það. Auðvitað vita allir hvernig leikmaður Tryggvi er og það væri náttúrulega mjög gott að fá hann í glugganum, en ef hann kemur eftir tímabilið þá er það bara svo," sagði Lárus.
Lék síðast með ÍA 2020.

Lék síðast með ÍA 2020.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri: Alltaf í sama helvítis viðtalinu

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik13+722
5Valur15-519
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.