Fotbolti.net
13.08.12 - 13:15
Magnús Már Einarsson

Ryo Miyaichi til Wigan (Staðfest)

Ryo Miyaichi til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur fengið kantmanninn Ryo Miyaichi á láni frá Arsenal en samningurinn gildir út tímabilið.

Þessi 19 ára gamli Japani var í láni hjá Bolton síðari hlutann á síðasta tímabili.

Þar vakti Ryo athygli fyrir hraða sinn og tækni en hann var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Bolton.
Hjá Wigan á Ryo að fylla skarð Victor Moses sem er að ganga í raðir Chelsea.

Wigan og Chelsea mætast einmitt í fyrstu umferðinni í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Heimild: Heimasíða Arsenal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.