13.08.12 - 21:43
Elvar Geir Magnússon
Arnór Ingvi lánaður frá Keflavík til Sandnes Ulf (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur lánað Arnór Ingva Traustason til Sandnes Ulf í Noregi. Þessi ungi leikmaður mun því ekki leika meira með liðinu í Pepsi-deildinni þetta sumarið.
Zoran Daníel Ljubicic, þjálfari Keflavíkur, staðfesti þetta við Fótbolta.net í kvöld. Hann segir að Sandnes Ulf muni svo hugsanlega kaupa Arnór ef hann nær að heilla á lánstímanum.

Arnór Ingvi er fæddur 1993 og hefur verið einn besti leikmaður Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar og skorað fjögur mörk. Hann var valinn í úrvalslið umferða 1-11 í deildinni.
„Það er mjög slæmt fyrir okkur að missa hann en svona er fótboltinn. Það er ekki hægt að koma í veg fyrir svona tækifæri hjá ungum leikmanni. Ég er í raun stoltur af því hve vel hann hefur staðið sig og náð að vekja athygli,\" segir Zoran Ljubicic.
Sandnes Ulf er í 14. sæti af 16 liðum í norsku úrvalsdeildinni en Steinþór Freyr Þorsteinsson er á mála hjá félaginu.