Ekroth mun sakna Gunnars - „Það mun svíða mikið"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er frekar svekktur auðvitað en við gáfum þessu alvöru séns," sagði Oliver Ekroth fyrirliði Víkinga eftir 3-2 sigur gegn Thun, en á endanum 5-3 tap í einvíginu, í forkeppni Evrópudeildarinnar.
„Við fengum nóg af færum til að skora allavega tvö mörk til viðbótar. Við bara nýtum færin okkar ekki nógu vel inn í teig, því miður. Bæði úti og hér fáum við á okkur kjánaleg mörk. Það er erfitt að komast í gegn þegar maður fær á sig fimm mörk," sagði Oliver.
Víkingar spiluðu virkilega vel í dag, og áttu meira skilið úr leiknum. Það svíður því aðeins meira að hafa ekki náð í betri úrslit í útileiknum.
„Já auðvitað, og okkur líður eins og við erum mjög góðir, en við vitum einnig að við erum mjög sterkir heima. Við unnum í dag, þó manni líður ekki þannig. Við höfum unnið mjög sterk lið hérna áður, og við trúðum allan leikinn að við gátum skorað þessi mörk og farið áfram, en á endanum tókst það ekki," sagði Oliver.
Thun fékk ekki mörg færi í dag en nýttu þau vel. Með aðeins betri varnarleik hefði þetta getað farið á annan veg.
„Þetta eru litlu hlutirnir, við vitum hvað við erum að gera rangt. Á móti svona sterkum liðum getur þú ekki gefið svona færi á þér. Þeir þurftu bara tvö færi til að skora og þeir skora tvö mörk. Þegar maður fer langt í Evrópu er manni refsað fyrir að gera kjánaleg mistök, og því miður gerðum við aðeins of mörg þannig," sagði Oliver.
Oliver hefur spilað hliðn á Gunnari Vatnhamar í þónokkur ár núna í öftustu línu Víkinga. Gunnar er núna á förum frá félaginu og mun hann skilja eftir stórt skarð.
„Það mun svíða mikið, Gunnar er frábær leikmaður en við erum með marga góða leikmenn tilbúna að taka við. Ég held liðið fer ekki í rúst við það að missa einn leikmann. Við erum með mjög gott lið, þannig við erum ánægðir fyrir hans hönd þar sem lífið hans mun verða mun betra. En við höldum áfram," sagði Oliver.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
