13.09.12 - 15:12
Magnús Már Einarsson
Vanda Sigurgeirsdóttir tekur við kvennaliði Þróttar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir var í dag ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Þrótti.
Vanda tekur við liðinu af Theódóri Sveinjónssyni sem hefur stýrt Þrótti undanfarin fjögur ár.
Vanda er einn reyndasti þjálfari landsins í meistaraflokki kvenna. Hún þekkir til hjá Þrótti en hún hefur verið yfirþjálfari yngri flokka kvenna og þjálfari 3. flokks kvenna hjá félaginu síðan í fyrra.

,,Samningurinn er til tveggja ára og stjórn knattspyrnudeildar bindur miklar vonir við störf hennar,\" segir á heimasíðu Þróttar.
Þróttur mun leika í Pepsi-deildinni á nýjan leik næsta sumar en liðið tryggði sér sigur í fyrstu deild kvenna um síðustu helgi.