Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 13. september 2021 14:04
Elvar Geir Magnússon
Braithwaite þarf að fara í aðgerð og verður lengi frá
Martin Braithwaite, sóknarmaður Barcelona.
Martin Braithwaite, sóknarmaður Barcelona.
Mynd: EPA
Martin Braithwaite, sóknarmaður Barcelona, verður lengi frá en hann þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla.

Danski landsliðsmaðurinn skoraði tvívegis í 4-2 sigrinum gegn Real Sociedad í fyrstu umferð La Liga. Hann meiddist á hné í 2-1 sigrinum gegn Getafe þann 29. ágúst.

Hann missti af leikjum danska landsliðsins í undankeppni HM og sakvæmt spænskum fjölmiðlum þá gæti hann verið frá næstu þrjá til fjóra mánuðina.

Sergio Aguero, sem kom frá Manchester City í sumar, er ekki enn byrjaður að spila á tímabilinu eftir að hafa meiðst á kálfa í ágúst. Búist er við því að hann snúi aftur í október.
Athugasemdir
banner
banner