Fotbolti.net
13.09.24 - 06:00
Auglýsingar

Stafróf knattspyrnunnar komin út

Stafróf knattspyrnunnar komin út
Canon

Mynd: Hólar

Út var að koma bókin STAFRÓF KNATTSPYRNUNNAR eftir Guðjón Inga Eiríksson sem hefur skrifað margar fótboltabækur í gegnum tíðina. Í bókinni er víða komið við, hún byggir á stuttum og oftar en ekki hnyttnum fróðleiksköflum og svo fótboltaþrautum (þó ekki með bolta á tánum!!!).
Jæja:
Hver pantaði pitsu fyrir varamennina? Hver týndist um borð í Herjólfi? Hvaða söngkona hitti ekki markið? Hvað er Rabona? Hver dó á vellinum en var lífgaður við? Hver var þekkt fyrir flikk-flakk innköst? Hver fann HM-styttuna? Hver ældi á völlinn? Já, og hvaða mikli markaskorari kúkaði á sig í landsleik?

Stafróf knattspyrnunnar ætti að höfða til allra sem hafa áhuga á vinsælustu íþróttagrein í heimi, knattspyrnunni.

Hún hentar ákaflega vel til lestrarþjálfunar fyrir þau börn sem farin eru að bjarga sér í lestri en þarfnast frekari æfinga. Einnig ættu hinir eldri að hafa gaman af henni og því er þetta sannkölluð fjölskyldubók.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.