13.09.26 - 18:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dagur Orri hafnaði samningstilboði Zilina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Orri Garðarsson mun klára tímabilið með Val en samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafnaði hann samningstilboði frá slóvakíska liðinu MSK Zilina.
Talað hefur verið um að Dagur Orri væri ósáttur hjá Val eftir að félagið hafnaði 30 milljóna króna tilboði danska B-deildarliðsins Fredericia í hann undir lok félagaskiptagluggans.

Valur samþykkti tilboð frá Zilina en Dagur Orri ákvað að vera áfram á Hlíðarenda.
Dagur hefur spilað vel að undanförnu. Hann skoraði í sigri á Þór í dag og skoraði og lagði upp í sigri á Keflavík í síðustu umferð. Hann mun spila síðustu fjóra leikina með Val en það er áfram mikill áhugi á honum erlendis og spurning hvað gerist í janúarglugganum.