Argentínski framherjinn Sergio Aguero er að snúa til baka úr meiðslum en hann skoraði í 2-2 jafntefli gegn UE Cornell í æfingaleik í dag.
Aguero kom til Barcelona á frjálsri sölu frá Manchester City í sumar en hefur ekki enn spilað sinn fyrsta keppnisleik með liðinu.
Hann hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa en það virðist styttast í eldskírn hans með Börsungum.
Aguero spilaði hálftíma og tókst að skora í leiknum. Philippe Coutinho komst einnig á blað en markið hjá Aguero má sjá hér fyrir neðan.
Sergio Aguero's first Barcelona goal 😍
— Goal (@goal) October 13, 2021
He won't get many easier than that 😅pic.twitter.com/Sk2y9mNblZ
Athugasemdir