mið 13. október 2021 11:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aníta Lísa og Óskar Smári taka við Fram (Staðfest)
Óskar Smári og Aníta Lísa
Óskar Smári og Aníta Lísa
Mynd: Fram
Fram hefur ráðið Anítu Lísu Svansdóttur og Óskar Smára Haraldsson sem þjálfara kvennaliðs félagsins til næstu tveggja ára.

Þau Aníta og Óskar taka við Fram sem endaði í 4. sæti í 2. deild í sumar undir stjórn Christopher Harrington.

Samhliða þjálfun meistaraflokks munu Aníta og Óskar sjá um þjálfun 4. flokks kvenna og koma að áframhaldandi uppbyggingu kvennaknattspyrnu innan félagsins.

Aníta Lísa var síðast aðstoðarþjálfari kvennaliðs KR ásamt því að gegna stöðu yfirþjálfara yngri flokka og þjálfa 2. 3. og 4. flokk kvenna. Hún var áður aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍA og yngri flokka þjálfari.

Óskar Smári stýrði liði Tindastóls í Pepsi-Max deild kvenna á síðustu leiktíð. Hann var áður aðstoðarþjálfari kvennaliðs Stjörnunna og þjálfaði 2. og 3. flokk kvenna hjá félaginu.

„Knattspyrnudeild Fram fagnar komu Anítu Lísu og Óskars Smára til félagsins og hlakkar til að fylgjast með frekari framþróun kvennaknattspyrnunnar undir þeirra leiðsögn," segir í tilkynningu Fram.
Athugasemdir
banner