Íslenska landsliðið hefur síðasta daga verið við æfingar í Antalya í Tyrklandi en í dag ferðast hópurinn yfir til Istanbúl.
Það eru ekki margir dagar sem íslenska liðið hefur í undirbúning fyrir leikinn gegn Tyrkjum en æft verður á keppnisvellinum, Türk Telekom leikvangnum, í kvöld.
Tyrkneska landsliðið ætlar hinsvegar að taka sína síðustu æfingu fyrir leikinn á æfingasvæði sínu sem er í úthverfi Istanbúl.
Á morgun fimmtudag verður leikurinn en hann fer fram klukkan 17:00 að íslenskum tíma, 20 að staðartíma.

Fótbolti.net er í Tyrklandi og færir tíðindi af fréttamannafundi Íslands sem fram fer í dag.
Þá er hægt að fylgjast með ferðinni á Instagram, en þar þarf einfaldlega að fylgja Fótbolti.net.
Athugasemdir