13.11.26 - 18:38
Brynjar Ingi Erluson
Elsti leikmaður í sögu HM afhjúpar lykilinn að löngum ferli - „Afi sprautaði upp í mig“

Essam El-Hadary er elsti leikmaður í sögu HM

Mynd: EPA

Essam El-Hadary, fyrrum markvörður egypska landsliðsins og elsti leikmaðurinn í sögu heimsmeistaramótsins, hefur greint frá heldur óvenjulegu leyndarmáli á bak við langan feril sinn.
El-Hadary var 45 ára gamall þegar hann lék með Egyptum á HM 2018 og hélt áfram að spila í tvö ár til viðbótar áður en hann lagði hanskana endanlega á hilluna.
Hann er þriðji leikjahæsti landsliðsmaður Egyptalands frá upphafi með 159 landsleiki, en leyndarmálið á bak við langlífi hans á fótboltavellinum er vægast sagt óhefðbundið. Það verður þó að koma í ljós hvort fleiri taki það sér til fyrirmyndar.
„Ég hef alltaf elskað að borða og hef gert það alla mína ævi. Þegar ég var yngri þá fór ég með afa mínum að fá ferska mjólk. Hann lét mig setjast undir vatnabuffal og sprautaði mjólkinni beint úr spenanum upp í munninn á mér.“
„Þetta er besta dæmið um þær blessanir sem við nutum hér áður fyrr. Í dag kaupum við hins vegar mjólk úti í búð og þurfum að skoða vel gæðin og hvaðan hún kemur,“ sagði El-Hadary í viðtali í hlaðvarpsþætti í Egyptalandi á dögunum.