Fotbolti.net
13.11.26 - 12:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Niko Hansen kveður Víking og semur við KA (Staðfest)

Niko Hansen kveður Víking og semur við KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen hefur yfirgefið Víking en hann hefur verið leikmaður liðsins frá árinu 2017. Í kjölfarið á því tilkynnti KA hann sem nýjan leikmann félagsins, en danski framherjinn hafði verið sterklega orðaður við KA.

Niko skrifar undir tveggja ára samning við KA og á að hjálpa liðinu upp úr Lengjudeildinni.

Úr tilkynningu KA
„Það er gríðarlega stórt að fá Nikolaj norður í gult og blátt og skýr skilaboð um að félagið ætlar sér strax aftur í deild þeirra bestu eftir vonbrigði sumarsins. Það er von okkar að gæði og reynsla Nikolaj muni bæði skila sér inn á vellinum sem og í því verkefni okkar að þróa áfram hina mörgu ungu og efnilegu leikmenn félagsins."

„Við bjóðum Nikolaj hjartanlega velkominn í KA og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hans í gula og bláa búningnum. Fyrr í dag tilkynntum við endurkomu Túfa, Srdjan Tufegdzic, og ljóst að það eru afar spennandi tímar framundan á brekkunni með komu þeirra tveggja."
Túfa mættur heim í KA (Staðfest)
TENGT EFNI

Túfa mættur heim í KA (Staðfest)

Tilkynning VíkingsVerður ætíð hluti af sögu félagsins
Hann skoraði 121 mark í 310 leikjum fyrir Víking og er markahæsti lekmaður í sögu félagsins. Hann hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari með Víkingi og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann var fyrirliði liðsins tímabilin 2023-24.

Takk fyrir okkur Niko!

Hinn magnaði framherji Nikolaj Hansen kveður Víking eftir 10 ára þjónustu!

Fyrirliðinn Niko kom til Víkings sumarið 2017. á liðnum áratug hefur hann tekið þátt í 310 leikjum fyrir félagið og skorað 121 mark. Hann er markahæsti leikmaður Víkings í efstu deild karla frá upphafi. Hann er sömuleiðis markahæsti leikmaður íslenskra liða í Evrópukeppnum. Niko hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari með Víkingi, en samtals hefur hann unnið 10 stóra titla á Íslandi sem gerir hann að sigursælasta erlenda leikmanni Íslenskrar knattspyrnu frá upphafi.

Framlag Nikolaj verður þó ekki aðeins metið í mörkum, leikjum og titlum. Hann hefur verið mikilvægur hluti af liðsheildinni, innan vallar sem utan, og er í miklum metum hjá samherjum, starfsfólki og stuðningsfólki félagsins. Nikolaj hefur svo sannanlega sett mark sitt á Víking og verður ætíð hluti af sögu félagsins.

Knattspyrnudeild Víkings þakkar Nikolaj innilega fyrir framlag hans og fyrir allar ógleymanlegu stundirnar í rauðu og svörtu treyjunni. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta á nýjum vettvangi.

Hamingjan er er þér alltaf opin!

Túfa og Nikolaj Hansen.

Túfa og Nikolaj Hansen.

Canon

Mynd: KA

Niko Hansen kveður Víking og semur við KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.