Fotbolti.net
13.11.26 - 18:17
Brynjar Ingi Erluson

Isak ætlar að loka sig af frá umheiminum þegar GTA 6 kemur út

Alexander Isak getur byrjað að spila GTA 6 á fimmtudag

Alexander Isak getur byrjað að spila GTA 6 á fimmtudag

Canon

Mynd: EPA

Sænski framherjinn Alexander Isak hefur gert það ljóst að það verði erfitt að ná sambandi við hann þann 19. nóvember. Ástæðuna má þó ekki rekja til fótboltans, heldur tölvuleiks sem hann hefur beðið lengi eftir.
Þann dag kemur loksins út Grand Theft Auto 6, einn mest spennandi tölvuleikur síðari ára, sem milljónir spilara um allan heim hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu.

Isak er sjálfur mikill áhugamaður um tölvuleiki og segir að það verði nánast útilokað að ná í hann þegar leikurinn kemur út.

„Það verður erfitt að ná í mig þann 19. nóvember þegar leikurinn kemur út. Ég verð algjörlega einbeittur á það,“ sagði Isak í viðtali við sænska ríkissjónvarpið.

Fréttamaðurinn spurði Isak í kjölfarið hvort hann væri búinn að tæma dagskrána fyrir helgina, en Liverpool mætir einmitt erkifjendum sínum í Manchester United sunnudaginn 22. nóvember.

„Það er planið,“ svaraði Isak, sem er greinilega orðinn ansi spenntur fyrir útgáfu leiksins.

Og hann er svo sannarlega ekki einn um það, enda eru liðin þrettán ár síðan síðasti Grand Theft Auto-leikurinn kom út og má því búast við gríðarlegri eftirvæntingu þegar fimmtudagurinn rennur loksins upp.


Lucia og Jason eru aðalpersónurnar í nýja GTA leiknum en þar snúa spilarar aftur til Vice City

Lucia og Jason eru aðalpersónurnar í nýja GTA leiknum en þar snúa spilarar aftur til Vice City

Canon

Mynd: Rockstar Games

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.