Fotbolti.net
13.11.26 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino sá eini sem stjórnendur ræddu við

Pochettino sá eini sem stjórnendur ræddu við
Canon

Mynd: EPA - Samsett

Mauricio Pochettino er tekinn við hjá Manchester United og hafa stjórnendur félagsins gert það ljóst að hann var eini þjálfarinn sem félagið fór í viðræður við.
Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)
TENGT EFNI

Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)

Það leikur þar með enginn vafi á því að Pochettino hafi verið fyrsti kostur stjórnenda, en menn á borð við Eddie Howe, Julian Nagelsmann og Antonio Conte, sem eru allir án starfs sem stendur, voru einnig nefndir til sögunnar.

Þegar BBC spurðist fyrir um stöðuna innan herbúða Man Utd var skýrt tekið fram að ekkert ósætti sé á milli Glazer fjölskyldunnar og Jim Ratcliffe sem stjórna félaginu saman, þrátt fyrir orðróma um annað.

Að undanförnu hafa stuðningsmenn gagnrýnt Glazer fjölskylduna harðlega og Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála. Michael Carrick er þriðji þjálfarinn sem United rekur á þremur keppnistímabilum.
Pochettino sá eini sem stjórnendur ræddu við
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.