Fotbolti.net
13.11.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bruno var reiður út í annan en Carrick

Carrick og Holland.

Carrick og Holland.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandres, fyrirliði Manchester United, lét gamminn geisa eftir slæmt tap United gegn Como í Meistaradeildinni í síðasta mánuði.

Hann skaut á taktík liðsins og hvernig hefði verið lagt upp að pressa ítalska liðið. Margir tóku því sem skoti á þáverandi stjóra, Michael Carrick, en nú er sagt að reiðin hafi beinst á annan aðila.

Hann var settur á bekkinn í næsta leik en eftir fund með Carrick var Portúgalinn mættur aftur í byrjunarliðið.
Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið
TENGT EFNI

Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið

Mirror vísar í grein Roundtable þar sem sagt er að Bruno hafi verið reiður út í Steve Holland, aðstoðarmann Carrick.

Samkvæmt þeirra upplýsingum þá var Holland fyrst mjög vel liðinn innan leikmannahóps United en það þróaðist svo út í að hann lenti upp á kant við þá. Holland er sagður hafa átt stóran þátt í bættri spilamennsku United seinni hluta síðasta tímabils.

Sagt er að leiðbeiningar Holland hafi verið flóknar, hann hafi verið þrjóskur þegar United var að tapa og sumir lýst því að erfitt hafi verið að vinna með honum.

Einn heimildarmaður Roundtable lýsti honum sem „afar hrokafullum" og að hann hefði verið óvinsæll á Carrington, æfingasvæði United, frá því að hann kom þangað fyrr á þessu ári.

Miðillinn hefur þá heimildir fyrir því að ummæli Bruno Fernandes eftir leikinn gegn Como hafi af stórum hluta verið skot á Holland. Holland hafi svo þrýst á að Bruno yrði bekkjaður í næsta leik á eftir, og það varð svo niðurstaðan.

Í greininni er sagt að í velgengni þá skíni Holland, hann sé öflugur í taktík og búi yfir reynslu. En þegar blæs á móti, þá koma vandamálin upp á yfirborðið eins og sást á þessu tímabili. Það er einnig sagt að Jonathan Woodgate, einn af aðstoðarmönnum Carrick, hafi ekki verið með reynsluna eða gæðin í að vera í þjálfarateymi aðalliðs United.

Allir í þjálfarateymi Carrick, fyrir utan aðstoðar markmannsþjálfarann Connor King, voru látnir fara á fimmtudag.

Mauricio Pochettino mun taka við United en fyrst mun hann klára tvo leiki með bandaríska landsliðinu.
Bruno var reiður út í annan en Carrick
Canon

Mynd: EPA

Steve Holland.

Steve Holland.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.