13.11.26 - 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Vestri fær hárprúðan Tyrkja (Staðfest)

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri

Vestri hefur fengið tyrkneskan varnarmann til liðs við sig sem er 27 ára gamall og heitir Göktug Demiroglu.
Göktug er um 190sm á hæð og hefur leikið í neðri deildum í Tyrklandi og á Spáni, ásamt því að spila í næstefstu deild í Indónesíu og efstu deild í Filippseyjum.
Hann er einstaklega hárprúður og minnir hárstíllinn hans á stílinn sem Marouane Fellaini skartaði á sínum ferli.
„Goktug kemur til landsins í byrjun næsta árs og við bjóðum honum hjartanlega velkominn vestur," segir meðal annars í tilkynningu frá Vestra.