Fotbolti.net
13.11.26 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fjórir leikmenn sem Carrick vildi en fékk ekki

Fjórir leikmenn sem Carrick vildi en fékk ekki
Canon

Mynd: EPA

Í kjölfar brottreksturs Michael Carrick frá Manchester United hefur blaðamaðurinn Henry Winter sagt frá því að Carrick hafi mælt með fjórum leikmönnum í sumar sem ekki tókst að fá til félagsins.

Það voru þeir Elliot Anderson, Lewis Hall, Morgan Rogers og Mateus Fernandes. Þrír þeirra fóru á háar upphæðir milli félaga; Anderson fór á metupphæð til Manchester City, Rogers á metupphæð til Chelsea og Fernandes á metupphæð til Tottenham.

Hall er áfram leikmaður Newcastle og endursamdi við félagið.
United gerði þrjú stór kaup í sumar. Carlos Baleba kom frá Brighton, Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa. Karl Darlow kom þá frítt frá Leeds. Kostuðu leikmennirnir alls um 155 milljónir punda.

Eftir viðskiptin í sumar hefur United gengið illa. Liðið hefur ekki byrjað jafnilla í 40 ár, situr í fallsæti, og Carrick var látinn fara í gær

Mauricio Pochettino mun taka við sem stjóri liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.