Fotbolti.net
13.11.26 - 14:53
Ívan Guðjón Baldursson

Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt

Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino svaraði spurningum á fréttamannafundi bandaríska landsliðsins sem var haldinn skömmu eftir að stór tilkynning barst frá Manchester United.
Pochettino tólfti stjórinn síðan Sir Alex
TENGT EFNI

Pochettino tólfti stjórinn síðan Sir Alex

Pochettino er tekinn við Man Utd eftir rúmlega tvö ár með bandaríska landsliðið og er ljóst að hans verður sárt saknað í Bandaríkjunum. Stjórnendur landsliðsins og stuðningsmenn eru svekktir að missa Pochettino en mjög þakklátir fyrir hans framlag.

„Þetta er ein af erfiðustu ákvörðunum sem ég hef tekið á ferlinum," sagði Pochettino á fréttamannafundinum og felldi tár. Hann átti erfitt með að halda aftur af tárunum.

„Vanalega er þetta öfugt, maður er rekinn og grætur út af því að maður vill vera áfram í starfinu. Í þessu tilfelli er það andstæðan. Þetta er virkilega erfið ákvörðun en á sama tíma þá er ég mjög spenntur fyrir næsta skrefi."

Pochettino var rekinn frá Tottenham og Chelsea þegar hann vildi fá tækifæri til að halda áfram og þekkir því tilfinninguna vel.

„Ég vil þakka starfsliðinu og leikmönnum fyrir þessi tvö ár sem hafa verið stórkostleg. Mér hefur liðið ótrúlega vel í þessu starfi og er mjög stoltur af verkefninu sem við unnum saman að. Það er mjög erfitt að ganga í burtu frá þessu verkefni.

„Það er sorglegt að ég sé að hætta á þessum tímapunkti en við erum fagmenn og þurfum að finna réttu leiðina að árangri sama hvað."


Bandaríkin spila mikilvæga leiki við Haítí í Þjóðadeildinni á næstu dögum, sem verða síðustu leikir Pochettino við stjórnvölinn.

„Við munum hafa nægan tíma til að tala um Manchester United í framtíðinni, núna ættum við að einbeita okkur að því að tala um bandaríska landsliðið fyrir næstu tvo leiki. Öll mín einbeiting er þar núna."
Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt
Canon

Mynd: EPA

Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.