Fotbolti.net
13.11.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Leikmaður West Ham bestur í Þýskalandi - Hafði betur gegn Olise

Leikmaður West Ham bestur í Þýskalandi - Hafði betur gegn Olise
Canon

Mynd: EPA

Þýski sóknarmaðurinn Niclas Füllkrug hefur verið valinn leikmaður októbermánaðar í þýsku úrvalsdeildinni eftir frábæra frammistöðu með Werder Bremen.
Füllkrug kom til Bremen á láni frá West Ham í sumar eftir að hafa fallið með enska liðinu niður í B-deildina síðasta vor.

Þjóðverjinn hefur heldur betur fundið sitt gamla form hjá Bremen og skorað tólf mörk í aðeins ellefu leikjum í deild og bikar, þar af sex í októbermánuði.

Füllkrug hafði betur í baráttunni um verðlaunin gegn þeim Michael Olise og Dayot Upamecano, leikmönnum Bayern München.

Hann er jafnframt markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með níu mörk eftir níu umferðir, einu marki meira en Patrik Schick hjá Bayer Leverkusen.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.