12.11.26 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino tekur við Man Utd - Fær tveggja og hálfs árs samning

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mauricio Pochettino er að taka við sem stjóri Manchester United og mun skrifa undir tveggja og hálfs árs samning á morgun. Frá þessu greina þeir Fabrizio Romano og David Ornstein á X í kvöld.
United hefur átt í viðræðum við Pochettino og umboðsmann hans undanfarna daga, en þær hófust áður en félagið tók ákvörðun um að reka Michael Carrick. Brottrekstur hans var síðan tilkynntur í dag.
Í gær var greint frá því að United hefði náð munnlegu samkomulagi við Pochettino um að taka við liðinu og hafa þeir Ornstein og Romano nú staðfest að hann verði næsti stjóri félagsins.
Pochettino mun skrifa undir samning til ársins 2029, en áður en hann tekur við United mun hann stýra bandaríska landsliðinu í tveimur leikjum í Þjóðadeild CONCACAF. Fyrsti leikur hans við stjórnvölinn hjá United verður síðan gegn Liverpool á Anfield þann 22. nóvember.
United mun greiða bandaríska fótboltasambandinu 7,4 milljónir punda fyrir að leysa Pochettino undan samningi sínum og er búist við því að félagið tilkynni komu hans á morgun.
Pochettino tekur við United í erfiðri stöðu, en liðið situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins átta stig og einn sigur eftir tíu umferðir.

???????????? BREAKING: Manchester United appoint Mauricio Pochettino as new head coach, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 12, 2026
Deal done and green light from US Federation as Poch has agreed all terms on Wednesday.
New era at #MUFC. ???????????? https://t.co/dilW4upttj
???? Mauricio Pochettino to become Manchester United boss on 2.5yr contract. Deal until summer 2029 + 54yo expected to lead #USMNT over int’l break & then arrive at #MUFC in time for Liverpool. Announcement as soon as Friday. W/ @AdamCrafton_ @TheAthleticFC https://t.co/7BwWN81Epk
— David Ornstein (@David_Ornstein) November 12, 2026