Fotbolti.net
12.11.26 - 23:11
Brynjar Ingi Erluson

Grealish biðst afsökunar - „Elska að spila fyrir þetta félag“

Grealish biðst afsökunar - „Elska að spila fyrir þetta félag“
Canon

Mynd: EPA

Enski vængmaðurinn Jack Grealish hefur beðið opinberlega afsökunar á að hafa ekki getað hjálpað Everton í síðustu leikjum, en hann er staðráðinn í að bæta upp fyrir það á næstu vikum.
Grealish ekki enn laus úr skammarkróknum
TENGT EFNI

Grealish ekki enn laus úr skammarkróknum

Grealish var settur í agabann af David Moyes, stjóra Everton, eftir að hafa farið út að skemmta sér tvo daga í röð og mætti ekki á æfingu.

Hann missti af tveimur leikjum gegn Newcastle í deildinni og deildabikarnum ásamt því að missa af leiknum gegn Coventry um síðustu helgi.

Grealish, sem er 31 árs, sneri aftur á völlinn með Everton í æfingaleik gegn Derby County sem fór fram fyrir luktum dyrum í dag. Í kjölfarið sendi hann frá sér afsökunarbeiðni á Instagram.

„Gott að vera kominn aftur með strákunum eftir nokkra góða daga á æfingasvæðinu.“

„Ég vil biðja alla stuðningsmenn og aðra sem tengjast félaginu afsökunar á því að hafa ekki getað hjálpað liðinu undanfarnar vikur.“

„Ég elska að spila fyrir þetta félag og get ekki beðið eftir að spila aftur fyrir framan ykkur í Everton-treyjunni. Sjáumst fljótlega,“
skrifaði Grealish í sögu sinni á Instagram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.