Fotbolti.net
13.11.26 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd og Man City berjast um leikmann - Horfir United áfram til Bandaríkjanna?

Malo Gusto.

Malo Gusto.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Powerade
Manchester félögin hafa bæði áhuga á Malo Gusto hjá Chelsea, Liverpool er með Luka Vuskovic á blaði og Leeds vill fá Will Lankshear. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins. Það er BBC sem tekur það helsta saman og samantektin er í boði Powerade.


Manchester United og Manchester City berjast um Malo Gusto (23) varnarmann Chelsea og franska landsliðsins. (Talksport)

Liverpool er með Luka Vuskovic (19) varnarmann Brighton á blaði sem skotmark næsta sumar. Brighton vill fá 80 milljónir punda fyrir Króatann. (Florian Plettenberg)

Fulham leiðir kapphlaupið um Rodrigo Riquelme (26) vængmann Real Betis. (Teamtalk)

Everton gæti reynt við Conor Gallagher (26) miðjumann Tottenham ef Englendingurinn verður falur í janúar. (Football Insider)

PSV hefur hafið samtal við PSV og belgíska miðjumanninn Kevin de Bruyne (35) varðandi möguleg félagaskipti frá Napoli í janúar. (Il Mattino)

Youssouf Fofana (27) miðjumaður AC Milan sem er á láni hjá Sevilla er á blaði Tottenham og Juventus. (Calciomercato)

Dean Smith, fyrrum stjóri Aston Villa og núverandi stjóri Charlotte FC í MLS, hefur áhuga á því að fá sinn fyrrum lærisvein, Jack Grealish (31) til sín. Launapakki Englendingsins gæti komið í veg fyrir félagaskipti. (Football Insider)

Folarin Balogun (25) framherji bandaríska landsliðsins, sem var nálægt því að fara til Everton í sumar, er orðaður við Manchester United og myndi þá vinna með Mauricio Pochettino sem er landsliðsþjálfari Bandaríkjanna. (Teamtalk)

Leeds er á meðal félaga sem fylgist náið með Will Lankshear (21) markahæsta leikmanni Championship deildarinnar. Lankshear kom til Middlesbrough frá Tottenham í sumar. (Football Insider)

Newcastle og Sunderland fylgjast bæði með Sydie Peck (22) miðjumanni Sheffield United og enska U21 landsliðsins. (Teamtalk)

Mikey Moore (19) gæti farið aftur til Rangers frá Tottenham. Tottenham íhugar að slaufa láni hans hjá Köln í janúar. (Teamtalk)

Barcelona hefur engan áhuga á því að selja miðjumanninn Gavi (22). Bayern München og Napoli hafa áhuga. (Marca)
Vuskovic er orðaður við Liverpool.

Vuskovic er orðaður við Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Balogun er orðaður við United.

Balogun er orðaður við United.

Canon

Mynd: EPA

Lankshear orðaður við Leeds United.

Lankshear orðaður við Leeds United.

Canon

Mynd: Middlesbrough

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.