Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. janúar 2020 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Demiral frá út tímabilið - Besti leikmaður Juve síðustu vikur
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn ungi Merih Demiral verður frá út tímabilið eftir að hafa meiðst í 1-2 sigri gegn Roma um helgina.

Demiral var keyptur til Juventus síðasta sumar og fékk lítinn sem engan spiltíma með liðinu þar til í desember. Þá fékk hann tækifæri og tók byrjunarliðssætið af Matthijs De Ligt.

Demiral hefur verið meðal bestu leikmanna Juve undanfarnar vikur og skoraði hann fyrsta mark leiksins í sigrinum gegn Roma. Hann meiddist skömmu síðar og var skipt af velli fyrir De Ligt á 19. mínútu í stöðunni 0-2.

Juve hafnaði tilboðum frá Leicester City og Borussia Dortmund í Demiral fyrr í janúar. Tilboðin hljóðuðu upp á 40 milljónir evra og eru Everton og Manchester City einnig sögð áhugasöm.

Demiral skaddaði krossband gegn Roma og þarf að fara í aðgerð. Hann verður líklegast frá í 6 mánuði og missir því af EM með tyrkneska landsliðinu. Tyrkir voru með bestu vörnina í undankeppni EM og var Demiral aðalmaðurinn þar.
Athugasemdir
banner
banner