Inter mun mögulega hætta við að fá Ashley Young í sínar raðir frá Manchester United að sögn Sky á Ítalíu.
Hinn 34 ára gamli Young hefur verið sterklega orðaður við Inter að undanförnu en hann verður samningslaus í sumar.
Inter hefur verið í leit að vinstri bakverði og félagið er nú mögulega að landa Leonardo Spinazzola frá Roma.

Roma vill fá miðjumann eftir að Nicolo Zaniolo meiddist illa gegn Juventus um helgina. Roma er að reyna að fá Matteo Politano frá Inter til að fylla skarð Zaniolo.
Líklegt þykir að Roma fái vinstri bakvörðinn Spinazzola í skiptum fyrir Politano og þá eru líkurnar talsvert minni á að Young komi til félagsins.
Athugasemdir