Fotbolti.net
17.06.26 - 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Það besta sem ég hef séð frá Englendingum í mörg, mörg ár"

„Það besta sem ég hef séð frá Englendingum í mörg, mörg ár"
Canon

Mynd: EPA

England vann frábæran 4-2 sigur á Króatíu í fyrstu umferð L-riðils á HM í kvöld.

Staðan var 2-2 í hálfleik þar sem Króatar svöruðu tvisvar eftir mörk frá Harry Kane. Jude Bellingham kom Englandi yfir snemma í seinni hálfleik og Marcus Rashford innsiglaði sigurinn eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Arnar Gunnlaugsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Albert Brynjar Ingason voru sérfræðingar í settinu á RÚV eftir leikinn og hrósuðu Englendingum í hástert.

„Ef væntingar til Englendinga voru miklar þá eru þær farnar úr böndunum," sagði Eiður Smári.

„Þetta var líklega það besta sem ég hef séð taktísktlega séð frá Englendingum í mörg, mörg ár. Southgate var aldrei neinn taktískur snillingur, það sem hann náði með leikmönnum og þjóðinni eitthvað tilfinningalegs eðlis. Hann náði að brjóta þessa minnimáttarkennd á bak aftur sem var búin að þjá Englendinga ansi lengi," sagði Arnar.

„Tuchel er elítuþjálfari. Hann meðhöndlar landslið eins og félagslið. Við vorum að sjá hreyfingar á leikmönnum Englands sem maður sér bara hjá félagsliði."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.