Fotbolti.net
17.06.26 - 23:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rice um Tuchel: Vá hvað hann er frábær þjálfari

Rice um Tuchel: Vá hvað hann er frábær þjálfari
Canon

Mynd: EPA

England vann sterkan 4-2 sigur á Króatíu í fyrsta leik L-riðils á HM í kvöld.

Staðan var 2-2 í hálfleik en Englendingar komu sterkir út í seinni hálfleik. Jude Bellingham skoraði þriðja markið strax í upphafi seinni hálfleiks og Marcus Rashford innsiglaði sigurinn í lokin.
Declan Rice hrósaði Thomas Tuchel fyrir hálfleiksræðuna.

„Þetta var heilt yfir frábær seinni hálfleikur. Tuchel var frábær í hálfleik. Orðin sem hann notaði og hvað hann sagði. Þetta var eitt af þeim augnablikum sem maður er bara: 'vá hvað hann er frábær þjálfari," sagði Rice.

Rice var tekinn af velli á 72. mínútu en hann fullvissaði stuðningsmenn Englands að hann væri heill heilsu.

„Ég var búinn að passa þetta seinni hluta tímabilsins með Arsenal. Ég er góður, þetta voru bara varúðarráðstafanir."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.