Fotbolti.net
17.06.26 - 22:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Byrjunarlið Gana og Panama: Semenyo byrjar

Byrjunarlið Gana og Panama: Semenyo byrjar
Canon

Mynd: EPA

Gana og Panama mætast í L-riðli á HM klukkan 23 í kvöld. Liðin eru með Englandi og Króatíu í riðli en England vann Króatíu í kvöld.

Byrjunarlið Gana og Panama eru komin inn en Antoine Semenyo, leikmaður Man City, er í byrjunarliði Gana en hann er klárlega stærsta nafnið í leiknum.

Jordan Ayew, leikmaður Leicester, er fyrirliði liðsins. Liðsfélagi hans hjá Leicester, Issahaku Fatawu er á bekknum ásamt Inaki Williams, leikmanni Athletic Bilbao. Bróðir hans, Nico Williams er í spænska landsliðshópnum.

Gana saknar Thomas Partey sem fékk ekki inngöngu í Kanada.
Gana: Ati, Senaya, Adjei, Opoku, Mensah, Semenyo, Owusu, Yirenkyi, Nuamah, Sulemana, Ayew.

Panama: Mosquera, Blackman, Ramos, Córdoba, Andrade, Murillo, Harvey, Martinez, Rodriguez, Barcenas, Waterman
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.