þri 14. janúar 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Willems: Erfiðara að eiga við Traore en Cristiano Ronaldo
Jetro Willems.
Jetro Willems.
Mynd: Getty Images
Jetro Willems, varnarmaður Newcastle, segir að það sé erfiðara að eiga við Adama Traore, kantmann Wolves, heldur en sjálfan Cristiano Ronaldo.

„Ég hef spilað gegn mjög góðum leikmönnum á ferli mínum en enginn þeirra er eins fljótur og Traore," sagði Willems eftir leik Newcastle og Wolves um helgina.

„Hann er ótrúlegur og klárlega skrímsli. Hann er ekki bara ótrúlega fljótur heldur líka svo sterkur."

„Hann er þekktur sem hraðasti leikmaðurinn í fótboltanum og núna veit ég að það er satt. Ég tel að ég sé fljótur líka, að minnsta kosti þangað til að ég mætti honum! Þetta var eitthvað annað."

„Ég hef spilað gegn Ronaldo sem er fljótur en ekki svona fljótur. Auðvitað er hann leikinn en stundum er það auðveldara að mæta manni eins og honum heldur en einhverjum sem er ótrúlega fljótur."

Athugasemdir
banner
banner
banner