fös 14. janúar 2022 22:27
Victor Pálsson
Gallagher gerir lítið úr ummælum Vieira: Ekki hægt að líkja mér við hann
Mynd: Getty Images
Conor Gallagher skoraði eina mark Crystal Palace í kvöld sem gerði 1-1 jafntefli við Brighton á útivelli.

Brighton var mun sterkari aðilinn í þessum leik og tókst verðskuldað að jafna þegar örfáar mínútur voru eftir.þ

Gallagher ræddi við Sky Sports eftir leik en hann er í láni hjá Palace frá Chelsea.

„Að mínu mati var þetta mjög erfiður leikur. Við spiluðum ekki vel og þeir voru heilt yfir betri aðilinn," sagði Gallagher.

„Við vörðumst vel en vorum ekki nógu góðir á boltanum. Þeir pressuðu vel á okkur og við vorum í erfiðleikum. Við vorum ekki með nógu mikið sjálfstraust eins og í öðrum leikjum sem er svekkjandi."

„Stjórinn sagði í hálfleik að við þyrftum að gera meira með boltann. Jack (Butland) bjargaði okkur í þessum leik."

Patrick Vieira, stjóri Brighton, líkti Gallagher við Frank Lampard, goðsögn Chelsea, fyrir leik en hann gerði lítið úr þeim ummælum.

„Það er ekki hægt að líkja mér við einhvern eins og Frank Lampard."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner