Fotbolti.net
14.09.26 - 12:00
Elvar Geir Magnússon

Arsenal óskar eftir útskýringu á því af hverju vítið var dæmt

Ezri Konsa.

Ezri Konsa.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal ætlar að hafa samband við dómarasambandið og óska eftir útskýringum á því af hverju vítaspyrna var dæmd á Ezri Konsa í sigrinum gegn Sunderland á laugardag.

Konsa var að kljást við Dan Ballard í teignum og var talið að hann hefði brotið á þessum fyrirliða Sunderland.

Eftir leikinn gagnrýndi Mikel Arteta, stjóri Arsenal, þennan dóm og BBC segir nú að Englandsmeistararnir muni óska eftir útskýringu frá dómarasambandinu af hverju vítaspyrna hafi verið dæmd.
Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð
TENGT EFNI

Arteta um vítaspyrnudóminn: Hann notaði júdóbragð

John Brooks dómari dæmdi vítaspyrnuna og ákvörðun hans var svo staðfest af VAR. Arteta segir að þetta hafi ekki verið ásættanlegur dómur.

„Horfið bara á þetta aftur, það er mikið af myndavélum á vellinum og við erum með VAR. Við verðum að taka ábyrgð á að vernda íþróttina. Í dag hefði þessi ranga ákvörðun getað kostað okkur sigurinn og mögulega meira," sagði Arteta eftir leikinn.

Staðan var markalaus þegar vítið var dæmt en Arsenal vann leikinn að lokum 2-0.

Sérfræðingar BBC, Ashley Williams og Thomas Frank, sögðu báðir í Match of the Day að vítaspyrnudómurinn hafi verið rangur. Í raun hefði Arsenal átt að fá dæmda aukaspyrnu.

Sjáðu atvikið:

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.