Fotbolti.net
14.01.23 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Man City færir Delap á milli félaga í Championship (Staðfest)

Man City færir Delap á milli félaga í Championship (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur staðfest að sóknarmaðurinn Liam Delap muni ekki leika meira með Stoke City í Championship deildinni þar sem hann var á láni á fyrri hluta tímabils.

Man City lánaði Delap til Stoke með endurkallsmöguleika og hefur sóknarmaðurinn aðeins skorað 3 mörk í 22 leikjum með liðinu sem er í fallbaráttu og með 28 mörk skoruð í 26 leikjum.

City ákvað því að endurkalla Delap úr láninu og lána hann til annars félags í sömu deild - Preston North End. Preston spilar fótbolta sem er talinn henta betur fyrir Delap og vantaði sóknarmann til að fullkomna framlínuna.

Preston er sjö stigum fyrir ofan Stoke á töflunni en þó aðeins með 24 mörk skoruð. Þökk sé flottum varnarleik er Preston í umspilsbaráttunni, aðeins tveimur stigum frá umspilssæti.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.