Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. mars 2020 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gareth Bale opnar nýjan bar í Cardiff
Mynd: Getty Images
Gareth Bale er meðal eigenda Par 59, sem er nýr veitingastaður, bar og minigolfvöllur sem er að opna í miðbæ Cardiff, höfuðborg Wales.

Bale er afar hrifinn af hugmyndinni og segir þetta vera nákvæmlega sú tegund af stað sem hann hefði viljað fara á þegar hann var ungur í Cardiff.

„Ég get ekki spilað fótbolta að eilífu og hef áhuga á því að fjárfesta í spennandi tækifærum, sérstaklega í Wales. Ég vil gefa til baka til borgarinnar sem ég fæddist í og hjálpa Cardiff að stækka," sagði Bale.

Bale er þegar meðeigandi af öðrum bar í miðbæ Cardiff sem heitir Elevens.

„Við erum að bæta borgina með Elevens og Par 59. Vonandi höldum við áfram að gera borgina spennandi fyrir ungt fólk. Við erum alltaf að leita að nýjum tækifærum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner