Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   lau 14. mars 2026 16:00
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var dapurt hjá okkur í dag, þetta var svona flatt og soft, eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við. Ég held að þetta sé verðskuldaður fjögurra marka munur á milli liðanna," sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 0-4 tap gegn KR í undanúrslitum Lengjubikarsins í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  4 KR

Hvernig meturðu liðið þegar það er tæpur mánuður í mót?

„Ég er bara mjög ánægður á hvaða stað liðið er heilt yfir, við erum búnir að vinna alla leikina fyrir utan þennan og það er bara gott að sjá hvað gerist og hvernig það lítur út þegar við mætum ekki klárir. Ég er rólegur með liðið en við getum ekki mætt aftur svona í leik."

Það vantar leikmenn eins og Damil Dankerlui og Danna Finns, hvernig er staðan á þeim?

„Þeir eru að koma til baka, Danni er búin að vera svolítið langan tíma síðan síðasta sumar, brotnaði. Damil smá slingur og sama með Ibra (Turay), þeir verða klárir annaðhvort miðja eða lok næstu viku. Þorri er byrjaður að æfa, það er stutt í þá sem eru meiddir."

Það má þá búast við því að þeir verði á leikskýrslu í fyrsta leik í Bestu?

„Ég held að allir þessir ættu að vera klárir í það, já."

Haukur Örn er búin að vera góður, hvernig finnst þér hann hafa tekið gott skref áfram og stigið upp?

„Já mjög, hann var frábær hjá okkur fyrir tveimur árum og það vantaði aðeins upp í fyrra, reyndar frábært að sjá hvernig hann kom aftur þegar hann kom heim. Maður sá líka hvað stefndi í þá, það var þannig gír í honum og bragur og orkan frá honum, þannig að hann er að spila frábærlega og lítur alveg vel út."

Jökull um breiddina í hafsentastöðunni: „Ég veit það ekki þegar það er seinna í mótinu, það verður að koma í ljós, en framan af þá vonum við að þrír hafsentar séu nóg."

Er búist við fleiri hreyfingum á markaðinum?

„Nei ég held að við bætum ekki neinu við, þetta er hópurinn sem fer inn í mót, ég held að við séum ánægðir með hann."

Emil Atla virtist meiðast í leiknum, hvernig var staðan á honum?

„Hún er bara mjög góð, það var traðkað á honum og snéri sér eitthvað við það held ég, það er eitthvað smotterí."
Slapp
banner
banner
banner