Njarðvík 2 - 2 ÍA
Mörk Njarðvíkur: Guðmundur Magnússon og Bragi Karl Bjarkason
Mörk ÍA: Gabríel Snær Gunnarsson x2
Mörk Njarðvíkur: Guðmundur Magnússon og Bragi Karl Bjarkason
Mörk ÍA: Gabríel Snær Gunnarsson x2
Njarðvík fór með sigur af hólmi gegn ÍA í leiknum um þriðja sætið í Þungavigtarbikarnum í dag.
Njarðvík komst tvisvar yfir í leiknum en ÍA jafnaði í tvígang. Guðmundur Magnússon og Bragi Karl Bjarkason skoruðu mörk Njarðvíkur en hinn efnilegi Gabríel Snær Gunnarsson skoraði bæði mörk Skagamanna.
Leikurinn endaði með jafntefli og var því gripið til vítaspyrnukeppni. Þar hafði Njarðvík betur og tók því bronsið.
Stjarnan og FH mætast í úrslitaleik mótsins í næstu viku.
Athugasemdir




