Fotbolti.net
14.04.26 - 20:01
Brynjar Ingi Erluson

Ekitike fór sárþjáður af velli - Gæti verið lengi frá

Ekitike fór sárþjáður af velli - Gæti verið lengi frá
Canon

Mynd: EPA

Franski sóknarmaðurinn Hugo Ekitike gæti verið lengi frá eftir að hafa meiðst í leik Liverpool gegn Paris Saint-Germain á Anfield í kvöld. Hann gæti verið lengi frá.
Ekitike meiddist eftir tæpan hálftíma. Enginn var nálægt honum þegar hann datt í grasið og hélt aftan í ökklann á sér.

Sjúkraþjálfarar Liverpool huguðu að honum og var ljóst að hann gat ekki haldið leik áfram og kom Mohamed Salah inn á í hans stað.

Miðað við fyrstu myndir er útlit fyrir að hann hafi slitið hásin sem gæti haldið honum frá velli næstu átta til tólf mánuði. Það er þó mismunandi eftir mönnum.

Skelfilegar fréttir fyrir Liverpool enda hefur Ekitike verið einn af ljósu punktunum á annars slöku tímabili.

Það er kominn hálfleikur á Anfield en staðan er markalaus. PSG leiðir einvígið eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2-0.

Ekitike fór sárþjáður af velli - Gæti verið lengi frá
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.