Fotbolti.net
14.04.26 - 23:28
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Raphinha brjálaður: Þetta var rán!

Raphinha var ekki sáttur með dómgæsluna í leikjunum gegn Atlético

Raphinha var ekki sáttur með dómgæsluna í leikjunum gegn Atlético

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski leikmaðurinn Raphinha gæti verið á leið í bann fyrir að gagnrýna dómgæsluna í einvígi Barcelona gegn Atlético Madríd í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en hann segir Barcelona lagt í einelti af dómarastéttinni.
Meistaradeildin: Barcelona og Liverpool úr leik
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Barcelona og Liverpool úr leik

Raphinha er einn af bestu leikmönnum Barcelona en gat ekki verið með vegna meiðsla. Barcelona vann 2-1 í Madríd en það var ekki nóg til að komast áfram þar sem Atlético hafði betur í fyrri leiknum, 2-0, á Camp Nou.

Hann var á leiknum í kvöld og fylgdist með því sem fór fram, en hann gat með engu mótið skilið hvernig Atlético fékk að komast upp með allt.

Brassinn var tilfinningaríkur eftir leikinn og sagði nákvæmlega það sem honum lá á hjarta.

„Þetta var rán! Ég veit ekki hversu oft leikmenn Atlético fengu að brjóta af sér og dómarinn veifaði ekki einu gulu spjaldi. Þetta var bara algert rán.“

„Þetta var erfitt og sérstaklega þegar við sjáum að við þurfum að leggja okkur þrisvar sinnum meira fram til þess að vinna leikinn. Ég vil í alvörunni bara skilja af hverju dómarar óttast það svona mikið að sjá Barcelona ná í sigur.“

„Ég get skilið það að það séu gerð mistök í einum leik, en í tveimur í röð? Það er ómögulegt að skilja þetta,“
sagði Raphinha.

Atlético var að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn síðan 2017.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.