Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 12:52
Elvar Geir Magnússon
Rice æfði ekki með Arsenal - „Mun reyna allt til að vera með“
Rice tók ekki þátt í æfingu.
Rice tók ekki þátt í æfingu.
Mynd: EPA
Arsenal tekur á móti Sporting Lissabon annað kvöld í seinni viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Arsenal leiðir einvígið eftir 1-0 sigur í fyrri leiknum.

Declan Rice tók ekki þátt í æfingu Arsenal í dag og Mikel Arteta gaf lítið upp á fréttamannafundi.

„Við þurfum að bíða og sjá þar til á morgun hvernig nokkrir af strákunum eru og taka svo ákvörðun með þá í kjölfarið," sagði Arteta og var spurður að því hvað væri að hrjá Rice?

„Ég vil ekki tjá mig um að, sjáum hvernig hann verður á morgun. Hann var augljóslega ekki klár í að æfa í dag. Hann hefur spilað marga leiki og það er hluti af vandamálinu. Hann mun reyna allt til að vera með á morgun, það er ljóst."

Bukayo Saka, Jurrien Timber, Martin Ödegaard og Riccardo Calafiori tóku heldur ekki þátt í æfingunni; allavega ekki þær 15 mínútur sem fjölmiðlamenn fengu að fylgjast með.

„Vonandi er þetta dagaspursmál en ekki vikur," sagði Arteta um Saka.

Arsenal getur komist í undanúrslit annað tímabilið í röð, í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það yrði gott veganesti í toppslaginn gegn Manchester City sem fram fer á sunnudaginn.
Slapp
banner