Fotbolti.net
14.04.26 - 18:55
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Simeone svarar Yamal - „Þá sendum við sex menn á hann“

Diego Simeone ætlar að gera Yamal lífið leitt

Diego Simeone ætlar að gera Yamal lífið leitt

Canon

Mynd: EPA

Diego Simeone, þjálfari Atlético Madríd á Spáni, hefur ákveðið að verða ekki að ósk spænska leikmannsins Lamine Yamal, en hann ræddi við fjölmiðla fyrir leikinn gegn Barcelona í kvöld.
Atlético tekur á móti Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar klukkan 19:00.

Yamal, leikmaður Börsunga, bað Simeone um að hafa bara einn leikmann til að dekka sig í leiknum í kvöld eða bað um einn á einn stöðu í stað þess að láta alla elta hann um allan völl.

Simeone svaraði Yamal í viðtali stuttu fyrir leik þar sem hann hafnaði beiðni táningsins.

„Bað Lamine um einn á einn? Þá held ég að við setjum fjóra til sex leikmenn á hann!“ sagði Simeone og hló.

Atlético vann fyrri leikinn 2-0 á Camp Nou en seinni leikurinn er spilaður í Madríd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.