Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Slot: Kemur mér ekkert á óvart
„Þurfum að selja til að kaupa“
Arne Slot
Arne Slot
Mynd: EPA
Liverpool er úr leik
Liverpool er úr leik
Mynd: EPA
Arne Slot, stjóri Liverpool, var niðurlútur eftir að liðið datt úr leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en hann talaði dómgæsluna, ósanngjörn úrslit og sumarið við Amazon Prime.

Liverpool þurfti að játa sig sigrað gegn Evrópumeisturum PSG sem unnu samanlagt, 4-0, í leikjunum tveimur.

Englandsmeistararnir eiga ekki lengur möguleika á því að vinna titil á þessu tímabili.

Slot segir úrslitin ekki hafa verið sanngjörn í kvöld.

„Við fengum miklu meira en við verðskulduðum með því að tapa aðeins 2-0 í síðasta leik, alveg eins og á síðustu leiktíð, en við fengum líka miklu minna en við verðskulduðum á síðustu leiktíð. Við áttum að vinna þennan leik, en gæði PSG eru ástæðan fyrir því að þeir fá ekki á sig mörk,“ sagði Slot.

Dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu um miðjan síðari hálfleikinn er Alexis Mac Allister féll í teignum eftir að Willian Pacho keyrði aftan í hann. Ákvörðunin var dregin til baka með hjálp VAR.

„Ég er ekki hissa svona miðað við þær mörgu ákvarðanir sem hafa farið gegn okkur á þessu tímabili. Ef dómarinn hefði ekki gefið vítaspyrnu þá hefði VAR aldrei skorist inn í leikinn. Svo einfalt er það.“

„Eins og ég sagði þá kemur þetta ekkert á óvart, þetta er ekki bara í Meistaradeildinni heldur líka í ensku úrvalsdeildinni þar sem margar ákvarðanir fara gegn okkur.“

„Við gátum ekki skorað mörg þrátt fyrir að hafa fengið mörg færi. Þetta var auðvitað erfitt í síðustu viku, en við sýndum það á viku að við getum bætt okkur mikið og það er mjög stórt hrós fyrir leikmennina að þeir sýndu að þeir geta þetta.“

„Þeir héldu áfram þrátt fyrir að lenda 1-0 undir og því ber að hrósa. Ef þú horfir á xG-tölfræðina þá áttum við að skora tvö, en skoruðum ekki eitt. Þetta hefur gerst allt of oft á þessu tímabili,“
sagði Hollendingurinn.

Enska úrvalsdeildin fær fimm Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð og er nú markmiðið að tryggja það sæti. Einnig talaði hann um að félagið þurfti að styrkja hópinn vegna allra þeirra leikmann sem eru á förum í sumar. Andy Robertson og Mohamed Salah fara líklega og þá hefur Alisson Becker verið orðaður við Juventus. Ibrahima Konate verður samningslaus en samkvæmt erlendum miðlum eru meiri líkur en minni á að hann framlengi samning sinn.

„Auðvitað. Nú spilum við um þetta á næstu tveimur vikum og það góða er að Alex er kominn aftur og er fær um að spila margar mínútur. Það hefur mikið verið rætt og ritað um að félagi sé í hálfgerðri umbreytingu. Það hefur selt 8-10 leikmenn til þess að fjármagna kaup á fimm mjög gæðamiklum leikmönnum.“

„Við verðum að selja til að kaupa. Við munum missa nokkra leikmenn á frjálsri sölu og það verður stór áskorun í sumar, en félagið hefur sýnt að þetta módel virkar. Framtíðin er björt og sérstaklega ef við getum fengið leikmenn í stað þeirra sem eru að fara,“
sagði Slot.
Slapp
banner