Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. maí 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pochettino vonar að Dele Alli nái úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Dele Alli var í byrjunarliði Tottenham sem gerði 2-2 jafntefli við Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.

Honum leið þó illa fyrir leikinn og skánaði ástandið ekki þegar tók að líða á fyrri hálfleikinn. Mauricio Pochettino tók hann því útaf í hálfleik.

„Hann hitaði ekki upp með liðinu því honum leið furðulega. Hann var mjög lélegur í fyrri hálfleik útaf þessu og þess vegna skipti ég honum útaf," sagði Pochettino.

„Við vitum ekki alveg hvað var að en okkur grunar að þetta sé þreytueinkenni. Við þurfum að skoða hann betur. Hann fær að hvíla næstu vikur og verður vonandi klár í slaginn í júní."

Tottenham mætir Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 1. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner