Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 14. maí 2020 14:15
Elvar Geir Magnússon
Fimm skiptingar á lið í Þýskalandi út tímabilið
David Wagner, þjálfari Schalke.
David Wagner, þjálfari Schalke.
Mynd: Getty Images
Félögin í tveimur efstu deildum Þýskalands samþykktu í dag að leyfa fimm skiptingar á lið í þeim leikjum sem eftir eru af tímabilinu.

Er þetta gert til að hægt sé að dreifa álaginu meira og reyna að minnka meiðslahættu en spilað verður mjög þétt til að klára tímabilið.

Þýski boltinn byrjar aftur að rúlla á laugardaginn.

Hvert lið fær þrjá glugga til að gera skiptingar í leiknum. Þýska deildin vill þó ekki að lið setji fleiri en tvo leikmenn inn í einu.

Á fundinum í dag var einnig samþykkt að tímabilið yrði klárað, sama þótt það þyrfti að spila leiki eftir 30. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner