Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. maí 2020 12:30
Aksentije Milisic
James: Man Utd getur unnið deildina á næsta tímabili
Mynd: Getty Images
Daniel James, leikmaður Manchester United, segir að liðið geti unnið ensku úrvalsdeildina á næsta tímabili nái lykilmenn að haldast heilir.

James og Scott McTominay voru í viðtali og þær ræddu þeir um metnaðinn sem er hjá félaginu að vinna titla og að næsta tímabil verði risastórt.

„Næsta tímabil verður risastórt fyrir okkur, við höfum verið með nokkra menn í meiðslum á þessu tímabili, þar hafa sumir verið frá í langan tíma, Marcus, Paul og McTominay," sagði James.

„Ég held að þegar þeir koma til baka, og þegar allir koma til baka saman, þá erum við með mjög góða breidd í hópnum. Þetta er klárlega hópur sem getur barist um titilinn."

Paul Pogba hefur ekki spilað fyrir United á þessu ári en hann fór í aðgerð á ökkla. Þá meiddist Rashford í baki í leik gegn Wolves í enska bikarnum þann 15. janúar.

Scott McTominay tók í sama streng og James og segir mikinn metnað í gangi hjá liðinu.

„Markmiðið hjá öllum er að vinna titla og þannig verður það að vera. Við erum leikmenn Manchester United og þegar ég kom inn í aðalliðið lærði ég strax að það er alltaf sú krafa að vinna hvern einasta leik. Það hefur ekki alltaf gengið upp en við erum hungraðir í að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner