Finnski markvörðurinn Niki Mäenpää var maður leiksins er Venezia gerði 1-1 jafntefli við Roma á Ólympíuleikvanginum í Róm í kvöld en hann fær 10 fyrir frammistöðuna.
Venezia náði forystunni á fyrstu mínútu í gegnum David Okereke en eftir það sá Niki um rest.
Gestirnir spiluðu manni færri síðasta klukkutímann en finnski markvörðurinn varði sextán skot í leiknum og þar átta skot í teignum.
Hann hefur barist við Sergio Romero um markvarðarstöðuna á þessari leiktíð og spilaði 16. deildarleik sinn gegn Roma.
Niki átti flestar markvörslur í einum leik í fimm stærstu deildunum síðan 2019.
Þó hann hafi ekki náð að koma í veg fyrir jöfnunarmark Roma þá er alveg ljóst að hann tryggði liðinu stig í kvöld.
🔟 | A perfect goalkeeping display!
— SofaScore (@SofaScoreINT) May 14, 2022
Niki Mäenpää v Roma:
🧤 16 saves (!)
📥 8 saved shots from inside the box
🥊 3 punches
🚀 4 clearances
👌 65 touches (most for Venezia)
📈 10 SofaScore rating
The most saves in one match in the top 5 leagues since 2019! 🤯#RomaVenezia pic.twitter.com/GCtVUNUmWf
Athugasemdir