Fotbolti.net
14.05.26 - 11:42
Brynjar Ingi Erluson

Þrír Arsenal-menn koma til greina sem leikmaður tímabilsins

Declan Rice er einn af þremur leikmönnum Arsenal sem koma til greina

Declan Rice er einn af þremur leikmönnum Arsenal sem koma til greina

Canon

Mynd: EPA

Arsenal-mennirnir David Raya, Declan Rice og Gabriel hafa verið tilnefndir sem leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Listinn var opinberaður í dag.
Sex tilnefndir sem stjóri tímabilsins - Carrick á listanum
TENGT EFNI

Sex tilnefndir sem stjóri tímabilsins - Carrick á listanum

Raya er besti markvörður tímabilsins, en hann hefur haldið átján sinnum hreinu og aðeins fengið á sig 26 mörk.

Rice hefur verið vélin á miðjunni og Gabriel akkerið í öflugri vörn Arsenal-liðsins.

Erling Braut Haaland, markahæsti leikmaður deildarinnar, og Antoine Semenyo, eru fulltrúar Manchester City.

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur átt stórkostlegt tímabil og hjálpað liðinu að komast aftur í Meistaradeildina með nítján stoðsendingum sínum og þá eru þeir Igor Thiago hjá Brentford og Morgan Gibbs-White hjá Nottingham Forest einnig á listanum.

Thiago er næst markahæstur með 22 mörk og þá er Gibbs-White með þrettán mörk og fjórar stoðsendingar, sem reyndist Nottingham Forest dýrmætt í neðri hlutanum.

Þessir eru tilnefndir:
David Raya (Arsenal)
Declan Rice (Arsenal)
Gabriel (Arsenal)
Antoine Semenyo (Man City)
Erling Haaland (Man City)
Bruno Fernandes (Man Utd)
Igor Thiago (Brentford)
Morgan Gibbs-White (Nottingham Forest)

Haaland er tilnefndur

Haaland er tilnefndur

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.