Fotbolti.net
14.06.26 - 18:46
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild: Haukar steinlágu á Dalvík - KFG vann á Blönduósi

2. deild: Haukar steinlágu á Dalvík - KFG vann á Blönduósi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það var nóg um að vera í 2. deildinni í dag þar sem Dalvík/Reynir tók á móti toppliði Hauka í spennandi slag og skópu heimamenn frábæran sigur.
Aires Rodrigo náði forystunni fyrir Dalvíkinga snemma leiks og var staðan 1-0 í leikhlé. Í upphafi síðari hálfleiks varð Einar Karl Ingvarsson fyrir því óláni að skora sjálfsmark og fékk Máni Mar Steinbjörnsson að líta beint rautt spjald á 63. mínútu.

Tíu Hafnfirðingar náðu ekki að koma til baka á Dalvík. Þess í stað innsiglaði Sindri Sigurðarson sigurinn á lokakaflanum, svo lokatölur urðu 3-0.

Dalvíkingar fara upp í 13 stig við sigurinn á meðan Haukar eru áfram á toppi deildarinnar með 16 stig.

Gabriel Þór Þórðarson, Ingvar Freyr Þorsteinsson og Asmer Begic skoruðu þá mörkin er Víkingur Ólafsvík lagði botnlið Magna að velli.

Ólsarar eiga 11 stig eftir 8 umferðir en Grenvíkingar sitja eftir með 4 stig.

KFG hafði að lokum betur á erfiðum útivelli gegn Kormáki/Hvöt. Fimm mörk voru skoruð í spennandi slag þar sem liðin skiptust á að skora en að lokum gerði Pétur Máni Þorkelsson sigurmarkið fyrir KFG.

KFG er með 12 stig eftir sigurinn, einu stigi meira heldur en Kormákur/Hvöt.

Dalvík/Reynir 3 - 0 Haukar
1-0 Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa ('11)
2-0 Einar Karl Ingvarsson ('47, sjálfsmark)
3-0 Sindri Sigurðarson ('82)
Rautt spjald: Máni Mar Steinbjörnsson, Haukar ('63)

Víkingur Ó. 3 - 1 Magni
1-0 Gabriel Þór Þórðarson ('9)
1-1 Tómas Örn Arnarson ('51)
2-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('53)
3-1 Asmer Begic ('74)

Kormákur/Hvöt 2 - 3 KFG
1-0 Pere Belmonte ('11)
1-1 Aron Freyr Heimisson ('27)
1-2 Djordje Biberdzic ('35)
2-2 Bilal Kamal ('38)
2-3 Pétur Máni Þorkelsson ('67)
2. deild: Haukar steinlágu á Dalvík - KFG vann á Blönduósi
Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.