Fotbolti.net
14.08.12 - 11:24
Magnús Már Einarsson

Aron Einar nýr fyrirliði Íslands (Staðfest)

Aron Einar nýr fyrirliði Íslands (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Aron Einar Gunnarsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í undankeppni HM 2014 en þetta var staðfest á fréttamannafundi í dag. Leikmönnum var tilkynnt þetta á fundi í gær.
,,Það er ákveðið stolt að bera fyrirliðabandið og ég er ánægður með það. Ég hef verið að vinna að því að fá það og að hafa fengið það svona ungur er glæsilegt. Ég er stoltur af því,\" sagði Aron á fréttamannafundi í dag.

Aron Einar var með fyrirliðabandið í vináttuleikjunum gegn Frökkum og Svíum í vor og hann verður með bandið gegn Færeyingum á miðvikudag og í komandi leikjum í undankeppninni.

Sölvi Geir Ottesen var fyrirliði í undankeppni EM og hann var líka fyrirliði í öðrum vináttuleiknum undir stjórn Lars Lagerback þegar Ísland mætti Svartfellingum í febrúar.

Aron Einar byrjaði á bekknum þar en hann var með fyrirliðabandið gegn Frökkum og Svíum þar sem Sölvi var fjarverandi. Lars hefur síðan ákveðið að Aron verði fyrirliði landsliðsins.

Aron Einar er 23 ára gamall en hann hefur leikið 28 landsleiki síðan hann lék sinn fyrsta leik árið 2008.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.