14.08.12 - 19:30
Magnús Már Einarsson
Marlon Harewood til Barnsley (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Barnsley, sem leikur í ensku Championship deildinni, hefur gert eins árs samning við framherjann Marlon Harewood.
Harewood þekkir til hjá Barnsley því hann skoraði fjögur mörk í tíu leikjum á láni hjá félaginu tímabilið 2010/2011.
Þessi 32 ára gamli leikmaður var á reynslu hjá Sheffield Wednesday fyrr í sumar en fékk ekki samning þar.
Barnsley varð fyrir áfalli í síðustu viku þegar í ljós kom að framherjinn Mido mun missa af fyrstu þremur mánuðum tímabilsins vegna meiðsla aftan í læri.

Harewood hefur komið víða við á ferlinum en hann hefur meðal annars leikið með West Ham, Aston Villa, Newcastle, Blackpool og Nottingham Forest.
Heimild: BBC